Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sérstakur fréttaflutningur mbl.is

Alveg er þetta einstakt hjá mbl.is. Það er grundavallar atriði að ungmenni verði fyrir skaða af óæskilegu efni, eða svo heldur fréttamaður mbl.is.

 

Meðal þeirra sem urðu fyrir þessum árásum var ráðherra upplýsingatæknimála og fjarskipta í Ástralíu, Stephen Conroy. Hann hefur látið hafa eftir sér að nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða, svo að þarlend ungmenni verði fyrir skaða við notkun Internetsins.


mbl.is Halda áfram að hakka Ástrali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slökkviliðið stendur ekki undir nafni.

Betur má ef duga skal, en brunaliðið tryggir að eldurinn breiðist út.

Mikið agalega er ritstjórn og fréttamennska MBL á lágu plani því svona var fréttin!

Slökkviliðsmenn telja sig hafa tekist að tryggja, að eldurinn, sem logar í risi Höfða, breiðist út. Um tugur slökkviliðsmanna er á þaki hússins og hefur sagað á það gat til að komast að eldinum, sem nú hefur logað í tæpan klukkutíma.


mbl.is Eldurinn í risi hússins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þjóðin kanski krabbamein?

Ég óska Ingibjörgu góðum og skjótum bata, en ætli þjóðin hafi fundist í þessari aðgerð?
mbl.is Ingibjörg Sólrún væntanleg heim í vikulok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukið atvinnuleysi myndi fylgja kosningum.

Auðvitað vilja stjórnarliðar ekki kjósa, Þorgerður segir að atvinnuleysi muni aukast og ekki vill hún missa vinnuna. Auðvitað munu fáir íslendingar kjósa stjórnarflokkana svo atvinnuleysi núverandi þingmanna mun aukast hrikalega. Það er skelfileg staða, aumingja fólkið.
mbl.is Ekki á kosningabuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband